Þrátt fyrir allt

 

Slabbið og morgungráminn gæti lagst þungt á mann, -  ef ekki væri þessi vissa:

 

Snjórinn verður brátt á burtu rekinn,

og bjarmi sólar drífur skýjafar.

Og ástin verður aldrei aftur tekin,

sem eiginkonu minni helguð var.

 

Og það var nú einmitt það!