Glampandi Pollinn gárar fugl

18.03.2010

Sjá mynd í fullri stærð

Hávellan er sá fugl í minningum bernskunnar úr Mývatnssveit sem er fyrsti vorboðinn; með sitt a.a. álla . . Í morgun var hópur kominn á Pollinn - frábært í ládeyðunni. :

Glampandi Pollinn gárar fugl,

grámann úr sinni rekur.

Fegurðin deyfir frétta-rugl,

fögnuð í brjósti vekur

                                Tengill á Fuglavefinn Hér