Dagurinn heilsar með fegurð - en . .

Þorgerður er teppt í Kaupmannahöfn vegna öskudreifingar frá Eyjafjallajökli  og frú Helga er á Spáni og reiknar með því að fljúga heim í gegn um Madrid og Kaupmannahöfn á sunnudaginn.  Nú ríkir óvissa um flug í Norður-Evrópu alla næstu daga.

Morgunsólin mærir dag,

mun þar engu logið,

aftur kæmist allt í lag,

ef það verður flogið.